Verðskrá

Námskeiðin okkar og kortin eru inni í Sportabler. Þar getur þú valið áskriftarmöguleika eða skráð þig á námskeiðin okkar.

 

Sjálfsrækt á Sportabler

Áskriftarkort

10,900,- á mánuði

3 mánaða binditími. Uppsögn 1. mánuður.
Gildir í alla opna tíma.

stakur tími

2500,-

Gildir í einn opinn tíma.

10 skipta kort

19,900,-

Gildir í alla opna tíma.
Gildir í þrjá mánuði.

1 mánuður

14,900,-

Gildir í alla opna tíma.
Gildir í einn mánuð

Vikupassi

5,900,-

Gildir í alla opna tíma.
Gildir í eina viku

3 mánuðir

37,900,-

Gildir í alla opna tíma.
Eingreiðsla

6 mánuðir

68,900,-

Gildir í alla opna tíma.
Eingreiðsla

Árskort

109,000,-

Gildir í alla opna tíma.
Eingreiðsla

*Einkatímar eru í boði. Vinsamlega sendu fyrirspurn með fjölda iðkenda, fjölda tíma og óskir um tímasetningar á sjalfsraekt@gmail.com og við munum hafa samband.

ALMENNIR SKILMÁLAR:

*Ef viðskiptavinur kaupir kort eða tíma í Sjálfsrækt samþykkir hann eftirfarandi skilmála:

Kaup á kortum

  • Ekki er hægt að skila eða yfirfæra keyptan aðgang í stöðinni.

  • Ekki er hægt að deila með öðrum iðkendum korti eða aðgangi í stöðina.

  • Allir iðkendur verða að eiga sinn eigin reikning inni í bókunarkerfi Sjálfsræktar á Sportabler. Aðrir geta ekki notað sama netfang eða verið með aðgang að sama reikningi.

  • Öll kaup eru endanleg. 

  • Sjálfsrækt áskilur sér rétt til að breyta tímatöflu með stuttum fyrirvara.

  • Sjálfsrækt áskilur sér rétt til að breyta verðskrá og skilmálum án fyrirvara.

  • Áskrift þarf að segja upp nema annað sé tekið fram. Í boði er áskrift með eins mánaða uppsagnarákvæði að fyrstu 3 mánuðum loknum (ótímabundinn samningur). Uppsögn þarf að berast skriflega til sjalfsraekt@gmail.com.

Annað

  • Sjálfsrækt gerir sitt besta til að byrja og ljúka tímum á réttum tíma. Fyrirvari er gerður um breytingar á tímatöflu en hægt er að fylgjast með virkri tímatöflu á heimasíðu Sjálfsræktar og í Sportabler.

  • Það er á ábyrgð iðkanda að tilkynna kennara um meiðsl, veikindi eða ástand sem mun hafa áhrif á æfingu iðkandans.

  • Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestir iðkandinn, að samkvæmt bestu vitund, sé honum óhætt að stunda hreyfingu og að engin sérstök hætta búi af því heilsufarslega. Iðkandi æfir á eigin ábyrgð.

  • Iðkandi stundar æfingar á eigin ábyrgð og firrar Sjálfsrækt allri ábyrgð á hugsanlegum slysum eða meiðslum sem kunna að eiga sér stað, sem ekki verða rakin með beinum hætti til mistaka eða vanrækslu af hálfu Sjálfsræktar, stjórnenda stöðvarinnar eða starfsmanna hennar.

  • Sjálfsrækt áskilur sér rétt til þess að víkja þeim úr stöðinni sem ekki ganga sómasamlega um eða brjóta af sér í stöðinni eða gagnvart öðrum viðskiptavinum og starfsfólki.

Eigur og aðgangur

  • Sjálfsrækt ber ekki ábyrgð á persónulegum eigum iðkenda.

  • Útidyrahurð Sjálfsræktar getur verið læst við upphaf hvers tíma. Af öryggisástæðum, leyfum við ekki fólki að koma seint inn í tíma og mælum sterklega gegn því að fólk fari fyrr úr tíma.

Trúnaður

  • Sjálfsrækt heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskipti. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. 

Myndataka

  • Sjálfsrækt áskilur sér rétt til að taka myndir af iðkendum í húsum Sjálfsræktar til nýtingar í markaðssetningu og kynningu á stöðinni. Ef iðkandi fer sérstaklega fram á að ekki séu teknar myndir af sér í slíku skyni, skal hann láta Sjálfsrækt vita af því með skriflegum hætti.

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop