Liðleiki og styrkur
Sterkur líkami er ekki bara líkami sem getur lyft þungu. Hann er líkami sem getur hreyft sig frjálst, með stjórn og öryggi í öllum sínum hreyfisviðum.
Í þessum tímum byggjum við upp styrk, liðleika og líkamsvitund með náttúrulegum hreyfimynstrum eins og að sitja, standa, skríða, snúa, toga og ýta. Við vinnum með jafnvægi, samhæfingu, stöðugleika og öndun svo líkaminn verði sterkari, ekki bara í æfingasalnum heldur líka í daglegu lífi.
Við notum eigin líkamsþyngd ásamt fjölbreyttum áhöldum eins og ketilbjöllum, sandpokum og teygjum. Hver tími hefur ólíka uppbyggingu en markmiðið er alltaf það sama: að þú farir heim sterkari, liðugri og með meira traust á eigin líkama.
Fyrir hverja?
Fyrir alla sem vilja:
- byggja upp styrk sem nýtist í daglegu lífi,
- bæta liðleika og hreyfigetu,
- efla jafnvægi og samhæfingu,
- hreyfa sig með meiri gæðum og minni áreynslu.
Ávinningur
- Meiri styrkur og stöðugleiki.
- Betri liðleiki og hreyfigeta.
- Heilbrigðari hreyfimynstur.
- Aukið sjálfstraust í hreyfingu.
- Líkami sem er tilbúinn fyrir lífið.
Hvort heldur sem þú ert byrjandi eða lengra komin, færðu áskorun við hæfi og góðan stuðning frá þjálfara.
LIÐLEIKI OG STYRKUR
Mánudagar kl. 17.30 – 18.25
Miðvikudagar kl. 17.30 – 18.25
Föstudagur kl. 12.10 – 12.50
Föstudagur kl. 17.30 – 18.25