Sjálfsræktarhelgi

– næring fyrir líkama og sál


22. – 24. janúar 2027!

Komdu með okkur í endurnærandi kvennahelgi þar sem við hreyfum okkur, slökum á, nærum okkur vel og njótum þess að vera saman.

Dagskrá helgarinnar byggir á Sjálfsræktarleiðinni, öllu því sem við vinnum með í Sjálfsrækt heilsumiðstöð til að skapa jafnvægi, vellíðan og innri ró. Rauði þráðurinn er sjálfsumhyggja, núvitund og nærandi hreyfing.

Við dveljum í Helgafelli á Svalbarðsströnd, einstöku rými fyrir kyrrð, hreyfingu og slökun. Húsið er hlýlegt og við höfum aðgang að saunu, fullkomið skjól frá amstri hversdagsins. Gist er í tveggja og þriggja manna herbergjum.

 

Á dagskrá er meðal annars:

  • Fræðsla: Aðferðir og leiðir til meiri vellíðan
  • Bandvefslosun með boltum, gott til að mýkja bandvef og stífa vöðva
  • Jóga Nidra: Djúpslökun og endurnæring
  • Liðleika- og styrktaræfingar: Nærandi hreyfing
  • Kvennahringur: Rými til að hlusta, deila og tengjast
  • Nærandi máltíðir: Kvöldverður á föstudegi, morgun-, hádegis- og kvöldverður á laugardegi og morgun- og hádegisverður á sunnudegi
  • Veglegur gjafapoki sem nýtist þér yfir helgina
  • Útivist, sauna og sjósund – sem hægt er að njóta í eigin tíma

Alla helgina leiða okkur Sjálfsræktarskvísurnar,
Guðrún Arngríms og Hrafnhildur Reykjalín.

Verð: 89.000 kr.

Komdu með okkur í Sjálfsræktarferð og taktu skrefið í átt að meiri vellíðan, jafnvægi og krafti.

Dagskrá hefst kl.18.00 á föstudeginum en hægt er að mæta á staðinn frá kl.17.00
Heimför er áætluð kl. 13.00 á sunnudeginum.

 

Nánari fyrirspurnir sendist á sjalfsraekt@gmail.com

Sjálfsræktarhelgi

0
0
Your Cart
Your cart is emptyReturn to Shop