Áttavitinn

Á þessu 4 vikna námskeiði kortleggjum við persónulega styrkleika og gildi.
Við stuðlum að betri sjálfsvitund, vellíðan og trú á eigin möguleikum sem eykur sjálfstraust og skapar skýrari stefnu í lífinu.​ ​

Námskeiðið byggir á kenningum jákvæðrar sálfræði og markþjálfunar þar sem persónulegir styrkleikar eru taldir lykilatriði í lífshamingju, seiglu og árangri. Lögð er áhersla á persónulega þátttöku, virka hlustun og samtal – í umhverfi þar sem öryggi, virðing og vöxtur eru í forgrunni.

 

Þátttakendur læra meðal annars að:

  • Að bera kennsl á og nýta eigin styrkleika
  • Að virkja þá í daglegu lífi og í tengslum við framtíðaráform
  • Þekkja og virða styrkleika annarra – sem eflir tengsl, samstarf og félagslega virkni.
  • Bera kennsl á og endurskoða eigin gildi og hvaða áhrif þau hafa á ákvarðanir og stefnu í lífinu
  • Efla sjálfsþekkingu og skýra framtíðarmarkmið

Þátttakendur læra einföld, hagnýt verkfæri til að vinna með sína styrkleika og gildi til þess að verða öflugri í persónulegu lífi og/eða á vinnumarkaði.

Með því að tengjast og styrkja innri áttavita, öðlumst við skýrleika og hugrekki til að stíga næstu skref.

Á námskeiðinu aukum við sjálfsþekkingu, færni og trú á eigin getu, setjum okkur markmið og eflum félagsleg tengsl.

Námskeiðið er kennt einu sinni í viku, 1,5 klst í senn í fjórar vikur.
Þátttakendur sinna léttum verkefnum tengdum námskeiðinu á milli tíma.

Námskeiðið er haldið í litlum hópum í þægilegu rými Sjálsræktar.

    Næsta námskeið verður í janúar 2027.

    Kennarar: Guðrún Arngrímsdóttir og Hrafnhildur Reykjalín 

    ATH. Flest stéttarfélög greiða niður námskeið á vegum Sjálfsræktar. Við hvetjum þig til að kanna möguleika hjá þínu stéttarfélagi.

    Ég fann styrkleikana mína og lærði að lifa meira í takt við lífsgildin mín. Það hefur styrkt mig í að standa betur með sjálfri mér.

    Þátttakandi

    Það var ótrúlega dýrmætt að uppgötva mína styrkleika og læra að lifa meira í takt við lífsgildin mín. Námskeiðinu var mjög vel stýrt af Guðrúnu og Hrafnhildi. Mæli 100% með!

    Þátttakandi

    Áttavitinn

    4 vikna námskeið

    Verð kr. 44.000

     

    0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop