Byrjaðu hér – Inngangur að Sjálfsrækt

Langar þig að hugsa betur um þig en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja?

Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Byrjaðu hér er fjögurra vikna námskeið þar sem þú kynnist því hvernig við vinnum í Sjálfsrækt og færð að upplifa tímana okkar undir handleiðslu eigenda Sjálfsræktar.

Námskeiðið gefur þátttakendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum leiðum til hreyfingar og endurheimtar. Á námskeiðinu fá þátttakendur meðal annars að prófa Jóga Vellíðan, Jóga Nidra, Bolta og bandvefslosun og Liðleika og styrk.

Áhersla er lögð á líkamsvitund, öndun, slökun, milda uppbyggingu styrks og hreyfigetu, auk þess að draga úr spennu og auka öryggi í hreyfingu. Á námskeiðinu förum við markvisst í gegnum það hvernig við hlustum betur á líkamann og upplifum aukna vellíðan.

Á meðan á námskeiðinu stendur færðu jafnframt aðgang að öllum opnum tímum í Sjálfsrækt. Þannig geturðu kynnst stöðinni betur, prófað ólíka tíma og fundið hvað hentar þér best.

Þú þarft enga reynslu og þarft ekki að vera í ákveðnu formi. Við mætum þér þar sem þú ert. 

Við vonum að þessar fjórar vikur verði upphafið að einhverju stærra. Að þeim loknum geturðu haldið áfram í samfélagi Sjálfsræktar þar sem þú færð aðgang að öllum tímum okkar og stuðningi sem hjálpar þér að gera hreyfingu, hvíld og vellíðan að eðlilegum hluta af lífinu. 

Verð: 24.900 kr.

Kennt á þriðjudögum kl. 18.45

Næsta námskeið 4 vikur
5. janúar – 26. janúar 2027

Kennarar:
Guðrún Arngríms & Hrafnhildur Reykjalín

Byrjaðu hér - Inngangur að Sjálfsrækt

 4 vikna námskeið

Kennt þriðjudaga kl. 18.45

Verð kr. 24.900

0
0
Your Cart
Your cart is emptyReturn to Shop