Jóga Vellíðan
Jóga Vellíðan eru rólegir og endurnærandi tímar þar sem við vinnum með mjúka hreyfingu, öndun, núvitund og slökun. Hér gefur þú líkamanum tækifæri til að losa um spennu, auka hreyfanleika og finna dýpri tengsl við þig.
Við leggjum áherslu á að hlusta á líkamann frekar en að ýta honum áfram. Hver og einn vinnur út frá eigin forsendum og engin fyrri reynsla er nauðsynleg.
Margir upplifa að þeir fari úr tímanum rólegri, mýkri í líkamanum og með meiri orku til að takast á við daglegt líf.
Fyrir hverja?
Fyrir alla sem:
- vilja hreyfa sig á mildan og nærandi hátt,
- finna fyrir streitu eða álagi,
- eru að byggja sig upp eftir veikindi, kulnun eða áföll,
- vilja efla tengsl við líkama sinn og auka vellíðan.
Ávinningur
Meiri ró og jafnvægi.
Mýkri og liðugri líkami.
Betri líkamsvitund.
Minni streita og spenna.
Aukin vellíðan og meiri orka.
Jóga vellíðan
Þriðjudagar og fimmtudagar
kl. 10.00 – 11.00