Jóga Nidra
Í heimi þar sem við erum sífellt að gera, hugsa og bregðast við getur verið erfitt að finna raunverulega hvíld. Jóga Nidra gefur líkama og huga tækifæri til að stoppa.
Í tímunum leggst þú einfaldlega niður og leyfir rödd kennarans að leiða þig inn í djúpa slökun þar sem taugakerfið fær tækifæri til að róast og líkaminn að fara úr álagsástandi yfir í endurheimt.
Þú þarft ekki að kunna að hugleiða eða „gera rétt“. Þú mætir eins og þú ert.
Margir lýsa því að þeir fari úr tímanum eins og eftir langa og djúpa hvíld með meiri ró, skýrari huga og meiri orku.
Fyrir hverja?
Fyrir alla sem:
- finna fyrir streitu eða álagi,
- eiga erfitt með að slaka á,
- sofa illa eða vakna óúthvíld,
- vilja skapa meira jafnvægi í daglegu lífi.
Ávinningur
- Rólegra taugakerfi.
- Dýpri hvíld og betri endurheimt.
- Minni streita og spenna.
- Betri svefn.
- Meiri innri ró og vellíðan.
Jóga Nidra
Mánudagar kl. 18.45 – 19.35
Þriðjudagar kl. 12.10 – 12.50
Fimmtudagar kl. 12.10 – 12.50
Fimmtudagar kl. 17.30 – 18.20