Liðleiki og styrkur fyrir stirða stráka

Liðleiki og styrkur fyrir stirða stráka er árangursríkt námskeið fyrir karlmenn sem vilja vinna bug á stirðleika, styrkja líkamann og upplifa aukið frelsi og vellíðan í daglegu lífi.

Þú lærir að hreyfa þig betur, hvort sem markmiðið er að losna við verki, ná betri líkamsbeitingu og árangri í íþróttum eða einfaldlega auka lífsgæði og kraft frá degi til dags.

Í tímunum sameinum við styrktar- og liðleikaæfingar sem byggja upp líkamann „innan frá“ , með áherslu á hreyfiflæði, jafnvægi, samhæfingu og aukna líkamsvitund.

Með fjölbreyttum hreyfingum örvum við bæði taugakerfið og líkamann til þess að verða sterkari, liðugri og losum okkur við takmarkandi streitu í vöðvum og liðamótum.

Í hverjum tíma er unnið með liðleika, styrk og öndun ásamt slökun þar sem bæði líkami og hugur fá að endurnærast.

Markmið

  • Auka hreyfifærni, liðleika og styrk 

  • Byggja upp stoðkerfi líkamans, jafnvægi og stöðugleika 

  • Bæta líkamsvitund 

  • Draga úr stirðleika, verkjum og takmörkunum í hreyfingum 

  • Hjálpa þér að stunda áhugamál og hreyfingu verkjalaust og af meiri ánægju til langs tíma

    Aðgangur fylgir í alla opna tíma í tímatöflu á meðan á námskeiði stendur.

    8 vikna námskeið
    3. nóvember – 22. desember

    Kennari: Guðrún Arngríms

    Liðleiki og styrkur fyrir stirða stráka

    8 vikna námskeið

    Kennt miðvikudaga kl. 18.30

    Verð kr. 32.900.-

    0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop