Boltar og bandvefslosun
Losaðu
Líkaminn geymir oft spennu sem við tökum varla eftir fyrr en hún fer að hafa áhrif á hvernig okkur líður og hvernig við hreyfum okkur.
Í þessum tímum notum við nuddbolta og markvissar hreyfingar til að losa um spennu, bæta hreyfanleika og skapa meira frelsi í líkamanum. Þú lærir jafnframt einfaldar aðferðir sem þú getur nýtt heima til að hugsa vel um líkamann.
Þegar líkaminn sleppir takinu verður auðveldara að hreyfa sig, anda frjálsar og finna meiri léttleika.
Fyrir hverja?
Fyrir alla sem:
- finna fyrir stífleika eða spennu,
- vilja auka hreyfanleika,
- eru að byggja sig upp eftir álag eða meiðsli,
- vilja gefa líkamanum meiri athygli og umhyggju.
Ávinningur
- Minni spenna og stirðleiki.
- Aukinn hreyfanleiki.
- Betri líkamsvitund.
- Auðveldari og mýkri hreyfing.
- Betri endurheimt og meiri vellíðan.
Boltar og bandvefslosun
Mánudagar kl. 16.20 – 17.15
Fimmtudagar kl. 16.20 – 17.15