Styrkleikar

hvernig þeir nýtast í lífi og starfi

Styrkleikar eru þeir jákvæðu eiginleikar, hæfileikar og færni sem við búum yfir og nýtum í daglegu lífi og starfi. Rannsóknir innan jákvæðrar sálfræði sýna að þegar fólk þekkir og nýtir eigin styrkleika meðvitað eykst bæði vellíðan, orka og árangur. Þetta hefur ekki aðeins jákvæð áhrif á einstaklinginn heldur einnig á teymi og vinnustaðamenningu í heild.

Í fyrirlestrinum skoðum við hvað styrkleikar eru og hvernig hægt er að virkja þá markvisst í starfi. Við fjöllum um hvernig aukin sjálfsvitund og skýrari sýn á eigin styrkleika getur leitt til meiri starfsánægju, betri samskipta og aukinnar ábyrgðar í starfi. Einnig kynnum við hagnýtar leiðir sem nýtast bæði einstaklingum og teymum til að nýta styrkleika sína betur í daglegu samstarfi.

Markmið og ávinningur:

Markmið fyrirlestrarins er að auka meðvitund starfsfólks og stjórnenda um eigin styrkleika og hvernig hægt er að nýta þá markvisst í starfi.

Ávinningur getur m.a. verið:

  • Aukið sjálfstraust og skýrari sýn á eigin hlutverk
  • Meiri starfsánægja og orka í daglegum verkefnum
  • Bætt samskipti og samvinna innan teymis
  • Sterkari og jákvæðari vinnustaðamenning
0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop