Leiðir að vellíðan

Fyrirlesturinn fimm leiðir að vellíðan byggir á rannsóknum á líðan og hamingju fólks, sem embætti landlæknis styðst við og notar í heilsueflingarstarfi. Í fyrirlestrinum fjöllum við um mikilvæga þætti er varða andlega, líkamlega og félagslega vellíðan og hvernig við sjálf getum haft mjög mikið um þá þætti að segja. Þá kennum við einnig aðferðir sem þátttakendur geta tileinkað sér til að auka eigin vellíðan í daglegu lífi.

Við förum yfir þessa fimm þætti:

  • félagstengsl
  •  hreyfingu 
  • núvitund og sjálfsumhyggju
  • styrkleika og vaxtarhugarfar
  • að gefa af sér 

Markmið og ávinningur: 

Markmið fyrirlestrarins er að auka meðvitund starfsfólks og stjórnenda um þá þætti sem styðja við vellíðan og árangur í leik og starfi og veita hagnýt verkfæri sem auðvelt er að innleiða í daglegu lífi.

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop