Hreyfing hreyfingarinnar vegna

11. nóvember 2025 | Fróðleikur

Þú lesandi góður veist eflaust að hreyfing er okkur mikilvæg. Hún stuðlar að vellíðan, betri
lífsgæðum og heilsu, hefur góð áhrif á andlega líðan og minnkar líkur á ýmsum lífsstílstengdum
sjúkdómum.

En hvernig skilgreinir þú og hugsar um hreyfingu? Ertu með allt eða ekkert hugarfar, þar sem
það telur aðeins ef þú varst að í klukkutíma, púlsinn var í botni, úrið í gangi og þú brenndir fullt
af hitaeiningum? Eða hreyfirðu þig lítið sem ekkert af því að þú veist ekki hvar á að byrja? Þú
hefur ekki fundið ánægju í hreyfingu og skilaboðin um hvernig eigi að hreyfa sig, og hvernig alls
ekki, hafa ruglað þig svo mikið að allt virkar yfirþyrmandi?

Í þessum pistli ætla ég að lyfta upp hreyfingu hreyfingarinnar vegna. Hreyfingu fyrir vellíðan og
góða heilsu líkamlega sem andlega. Að hreyfa sig til að vinna á móti kyrrsetu. Hreyfingu sem er
ekki endilega þjálfun eða íþróttaiðkun (án þess að draga úr jákvæðum þáttum þeirra). Hreyfingu
þar sem áherslan er ekki tími, magn eða ákefð, heldur einfaldlega hreyfing til að hreyfa sig.

Þú þarft ekki að stunda stífa þjálfun til að koma inn hreyfingu

Þjálfun er tengd markmiðum og árangri. Eitthvað sem við vinnum markvisst í áttina að með
ákveðnum æfingum og æfingaáætlun. Okkur hefur verið innrætt að setja okkur ýmiss konar
markmið, en mörg þeirra eru ekki okkar eigin. Þau byggja á samfélagslegum hugmyndum um
hvernig við eigum að líta út eða hvað við eigum að geta. Það er bara ekki eitt sem hentar öllum.

Við getum orðið of háð plönum og því hvernig á að gera hlutina. Fyrir suma verður einfaldast að
sleppa öllu, því hugmyndin um hreyfingu verður of þröng og engin leið að víkja frá áætlun án
þess að finnast maður vera að bregðast sjálfum sér. Þá er planið ekki að styðja við mann.

Hreyfing þarf ekki að fylgja áætlun til að vera ánægjuleg og sjálfbær. Hún getur verið
hreyfingarinnar vegna og af fjölbreyttum toga, þar sem þú upplifir tengingu við líkamann og
hefur ánægju af því sem þú ert að gera. Á bak við þessa nálgun liggur einföld staðreynd. Við
erum gerð til þess að hreyfast yfir daginn, alla daga.

Hreyfing sem styður daglegt líf

Allt telur þegar við erum að tala um hreyfingu.

Góð spurning að spyrja sig er: „Hvað geri ég í mínu daglega lífi og hvernig getur hreyfing stutt
það?” Dagleg hreyfing á að styðja lífið sem þú lifir og endurspegla hvernig þú vilt eldast. Viltu
geta klætt þig í sokkana standandi fram eftir öllum aldri? Borið þunga poka? Setið á gólfinu með
börnum eða barnabörnum og staðið upp án vandræða? Haldið jafnvægi? Beygt þig og teygt,
undið upp á þig, ýtt og dregið?

Þetta eru hreyfingar og færni daglegs lífs sem við viljum klárlega búa yfir og viðhalda og það er
alls ekki flókið að gera það. Svo lengi sem þú hættir ekki að hreyfa líkamann þá geturðu
viðhaldið þessari færni. Það er heldur aldrei of seint að byrja.

Leikur er vanmetinn en líklega einn öflugasti þátturinn í því að skapa varanlegar hreyfivenjur.
Þegar þú til dæmis gleymir þér í dansi í eldhúsinu, léttri liðkun hér og þar yfir daginn, í leikjum
með krökkunum og göngu í náttúrunni svo eitthvað sé nefnt. Þegar þú hreyfir þig á þann hátt sem
þjónar þér best byggirðu sterkt samband við þig og líkama þinn án þess að það sé kvöð eða
skylda.

Hvernig líður þér eftir hreyfingu, og daginn eftir?

Hreyfing á að skila þér meiri orku, betri svefni, minni verkjum og auknu jafnvægi. Ef þú upplifir
mikla þreytu og orkuleysi, pirring og verki eftir þína hreyfingu þá ertu kannski að þjóna
hreyfingunni í stað þess að hún þjóni þér. Hreyfing á að styðja þig. Ekki öfugt.

Þú þarft að hlusta á þig og það hvernig þér líður frá degi til dags. Ekki úrið eða appið, ekki
æfingaáætlunina og alls ekki samfélagsleg markmið og markmið annarra því ekkert af þessu
segir þér hvernig þér líður og hvað þú átt inni á hverjum degi.

Finndu þína leið og fjölgaðu stundunum sem þú hreyfir kroppinn á fjölbreyttan hátt.

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop