Styrkur og uppbygging
– að treysta líkamanum á ný
Styrkjandi og nærandi hópþjálfun fyrir konur sem vilja byggja sig upp á öruggan og markvissan hátt. Áhersla er lögð á grunnstyrk, hreyfigetu, öndun og líkamsvitund með það að markmiði að auka orku, sjálfstraust og vellíðan í daglegu lífi.
Kenndar eru árangursríkar styrktar- og liðleikaæfingar ásamt einföldum aðferðum til að styðja við taugakerfið. Þú lærir að skilja betur eigin líkama og hvernig þú getur haft jákvæð áhrif á líðan þína með markvissri hreyfingu.
Á námskeiðinu fá þátttakendur hnitmiðaða og skýra fræðslu um taugakerfið og það hvernig hægt er að hafa áhrif á eigin líðan með aukinni þekkingu á eigin líkama, hreyfigetu og líkamsvitund. Kennslan nær yfir grunnatriði styrktarþjálfunar og hvernig hægt er að sameina þekkingu á taugakerfi og hreyfingu til að hámarka andlega sem líkamlega vellíðan, minnka meiðslahættu og verki.
Hvort heldur sem er byrjandi eða lengra komin fær iðkandi áskorun við hæfi og góðan stuðning frá þjálfara í fámennum hópi þar sem öryggi og traust ræður ríkjum. Námskeiðið hentar þannig bæði byrjendum og þeim sem vilja koma varlega og örugglega aftur af stað eftir hlé, til dæmis vegna álags, meiðsla eða líkamlegrar og andlegrar þreytu.
- Fámennur hópur – aðeins 8 konur
- Persónuleg og einstaklingsmiðuð leiðsögn
- Öruggt og styðjandi umhverfi
Kennt er einu sinni í viku í 6 vikur í sal Sjálfsræktar.
Þátttakendur hafa jafnframt aðgang að opnum tímum á meðan námskeiði stendur.
Leiðbeinandi er reyndur einkaþjálfari og jógakennari með sérþekkingu á samspili styrks, hreyfigetu og taugakerfis.
Næsta námskeið 6 vikur
7. apríl – 12. maí
Kennari: Guðrún Arngríms
Styrkur og uppbygging
– að treysta líkamanum á ný
6 vikna námskeið
Kennt þriðjudaga kl. 11.00
Verð kr. 33.900