Mobility fyrir stirða stráka

Mobility fyrir stirða stráka er árangursríkt námskeið fyrir karlmenn sem vilja vinna bug á stirðleika, styrkja líkamann og upplifa aukið frelsi og vellíðan í daglegu lífi. Þetta er námskeið þar sem þú lærir að hreyfa þig betur, hvort sem markmiðið er að losna við verki, ná betri líkamsbeitingu og árangri í íþróttum eða einfaldlega auka lífsgæði og kraft frá degi til dags.

Í tímunum sameinum við styrktar- og liðleikaæfingar sem byggja upp líkamann „innan frá“ – með áherslu á hreyfiflæði, jafnvægi, samhæfingu og aukna líkamsvitund. Með fjölbreyttum hreyfingum örvum við bæði taugakerfið og líkamann til þess að verða sterkari, liðugri og losum okkur við takmarkandi streitu í vöðvum og liðamótum.

Í hverjum tíma er unnið með liðleika, styrk og öndun ásamt slökun þar sem bæði líkami og hugur fá að endurnærast.

Markmið námskeiðsins:

  • Auka hreyfifærni, liðleika og styrk
  • Byggja upp stoðkerfi líkamans, jafnvægi og stöðugleika
  • Bæta líkamsvitund
  • Draga úr stirðleika, verkjum og takmörkunum í hreyfingum
  • Hjálpa þér að stunda áhugamál og hreyfingu verkjalaust og af meiri ánægju til langs tíma

Aðgangur fylgir í alla opna tíma í tímatöflu á meðan námskeiðið er í gangi.

Næsta námskeið 6 vikur
8. apríl – 13. maí

Kennari: Guðrún Arngríms

Mobility fyrir stirða stráka

6 vikna námskeið

Kennt miðvikudaga kl. 18.45

Verð kr. 20.900

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop