Stelpuferð með Sjálfsrækt

– næring fyrir líkama og sál

6.-8. febrúar 2026

Vilt þú verja með okkur endurnærandi helgi þar sem við hreyfum okkur, slökum á, nærum okkur vel og njótum þess að vera saman?

Dagskrá helgarinnar byggir á Sjálfsræktarleiðinni, öllu því sem við vinnum með í Sjálfsrækt heilsumiðstöð til að skapa jafnvægi, vellíðan og innri ró þar sem rauði þráðurinn er sjálfsumhyggja, núvitund og nærandi hreyfing.

Við dveljum í Ævintýrahúsinu Hóli á Siglufirði, einstöku rými fyrir kyrrð, hreyfingu og slökun. Húsið er hlýlegt, rúmgott og fallega innréttað, með setlaug og sánu, fullkomið skjól frá amstri hversdagsins. Gist er í tveggja manna herbergjum.

Dagskrá helgarinnar inniheldur meðal annars: 

  • Fræðslu – aðferðir og leiðir til vellíðunar
  • Bandvefslosun með boltum – til að mýkja bandvef og stífa vöðva
  • Jóga Nidra til djúpslökunar og endurnæringar
  • Mobility movement – liðleika og styrktaræfingar
  • Kvennahring – rými til að hlusta og deila
  • Nærandi máltíðir : kvöldverður á föstudegi, morgun-, hádegis- og kvöldverður á laugardegi, morgun- og hádegisverður á sunnudegi.
  • Veglegan gjafapoka sem nýtist þér yfir helgina
  • Útivist, sauna og setlaug – sem hægt er að njóta í eigin tíma

Early bird verð = 139.900
Almennt verð = 159.900

Stelpuferð með Sjálfsrækt

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop