Markþjálfun

Markþjálfun er fyrir þá sem vilja auka lífsgæði sín, bæta frammistöðu og kalla fram breytingar.

Markþjálfun er uppbyggilegt, hvetjandi og krefjandi samtal þar sem vitundarsköpun leiðir til nýrra lausna og tækifæra og stuðlar að auknum persónulegum vexti. Nútíð og framtíð eru í brennidepli og í stað þess að líta um öxl er horft til stöðunnar í dag og til framtíðarmöguleika.

 

Í markþjálfun færðu stuðning og endurgjöf og aðstoð við að öðlast skýrari framtíðarsýn með því að þekkja og nýta styrkleika þína. Markþjálfi heldur utan um ferlið og nær með beinum tjáskiptum og kraftmiklum spurningum að beina þér að kjarna málsins og ýta þannig undir lærdóm, tileinkun og vöxt. Markþjálfi aðstoðar þig við að virkja sköpunargleðina, stækka þægindarammann, víkka sjóndeildarhringinn og hvetur þig áfram í að ná raunhæfum og árangursríkum markmiðum.


Markþjálfun nýtist þér meðal annars þegar:

·         Þú vilt auka lífsgæði þín

·         Þú vilt koma auga á tækifærin

·         Þú vilt yfirstíga hindranir

·         Þig vantar betra jafnvægi

·         Þú vilt bæta heilsuna

·         Þig vantar aðstoð við að takast á við breytingar

·         Þú vilt skýrari framtíðarsýn

·         Þú vilt læra að þekkja og nýta hæfileika þína og styrkleika betur

·         Þú vilt byggja þig upp

Markþjálfunin fer fram með hnitmiðuðum reglubundnum samtölum sem byggja á trúnaði, heilindum og virðingu. Til þess að ná sem mestum árangri er mælt með því að koma í fleiri en einn tíma  og byrja flestir á 3 – 5 tímum. Viðfangsefnin geta verið margvísleg og eru ákveðin af viðskiptavininum. Ekki er nauðsynlegt að vera með fyrirfram ákveðin viðfangsefni í huga. Markþjálfinn aðstoðar þig við að koma auga á hvað það er sem skiptir máli og finnur nálgun og áherslur sem henta best.

Hrafnhildur og Guðrún nýta þekkingu sína og reynslu á sviði jákvæðrar sálfræði og heilsuráðgjafar til þess að skapa kjöraðstæður til sjálfsþekkingar og þroska.

Þær taka vel á móti þér á myndaspjalli á netinu eða í fallegu rými Sjálfsræktar. Endilega hafðu samband og saman ákveðum við næstu skref.

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop