Núvitund
Núvitund er einföld en áhrifarík leið til að efla vellíðan í daglegu lífi og starfi. Í hraða nútímans er algengt að hugurinn sé annað hvort upptekinn af því sem er liðið eða því sem er fram undan. Með því að þjálfa núvitund getum við aukið nærveru, skýrleika og jafnvægi í því sem við erum að gera hverju sinni.
Í fyrirlestrinum fjöllum við um hvað núvitund er og hvernig hún nýtist í vinnuumhverfi. Við skoðum hvernig aukin meðvitund um hugsanir, tilfinningar og líkamsviðbrögð getur dregið úr streitu, bætt einbeitingu og styrkt samskipti. Einnig kynnum við einfaldar og hagnýtar æfingar sem þátttakendur geta nýtt strax í daglegu lífi og starfi.
Markmið og ávinningur:
Markmið með fyrirlestrinum er að kynna núvitund á aðgengilegan og hagnýtan hátt og veita þátttakendum verkfæri til að efla einbeitingu, draga úr streitu og auka vellíðan í starfi og daglegu lífi. Með reglulegri iðkun getur núvitund stutt við betri ákvarðanatöku, aukna sjálfsvitund og jákvæðari vinnustaðamenningu.