Fróðleikur
Meðvituð hreyfing
Á síðustu árum hefur skilningur okkar á hreyfingu og heilsu verið að breytast. Í auknum mæli er horft til þess hvernig hreyfing hefur áhrif á líðan okkar, taugakerfið og tengingu okkar við eigin líkama, fremur en að einblína eingöngu á afköst, kaloríubrennslu eða...
Líkaminn geymir meira en við höldum
Það eru ákveðnir tímar í lífinu þar sem við pönkumst áfram einfaldlega vegna þess að við þurfum að gera það. Við mætum í vinnu, sinnum fjölskyldunni, klárum verkefnin og höldum utan um allt það sem þarf að halda utan um. Erum dugleg og klárum það sem við höldum að...
Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?
Hreyfanleiki (mobility) er getan til þess að hreyfa líkamann með stjórn og stöðugleika í gegnum sitt eðlilega hreyfisvið. Hann er grunnur að því hvernig við hreyfum okkur, hvort sem það er í daglegu lífi, vinnu eða íþróttum. Hreyfanleika og liðleika er oft ruglað...
„Næring“ – meira en það sem er á disknum
Þegar við hugsum um næringu hugsum við kannski flest fyrst um mat. Hvað við borðum, hversu oft og hvort það telst „hollt“ eða ekki. Það er fullkomlega eðlilegt þar sem matur er grunnur að líkamlegri heilsu og skiptir máli fyrir orku, uppbyggingu og starfsemi líkamans....
Þegar lífið hægir á manni
Það koma tímabil í lífinu þar sem maður velur ekki sjálfur taktinn. Tímabil þar sem eitthvað breytist og margt af því sem maður var vanur að treysta á virkar ekki lengur á sama hátt og áður. Líkaminn bregst öðruvísi við því sem maður leggur á hann, orkan verður...
Gildi – Þinn innri áttaviti
Við eyðum oft miklum tíma í að hugsa um hvað við viljum gera, bæta eða ná. Við setjum okkur markmið, skipuleggjum dagana okkar og reynum að halda utan um allt sem við viljum sinna. Sjaldnar gefum við okkur tíma til þess að staldra við grunnspurninguna sem liggur undir...
Flækjum ekki hlutina
Þegar lundin er þung eða orkan lítil reyni ég að muna eftir því að staldra við og spyrja mig nokkurra einfaldra spurninga: Hef ég hreyft mig reglulega undanfarið? Hef ég varið tíma úti? Hef ég hitt fólkið mitt og átt nærandi samskipti? Hef ég hugað að svefnvenjum...
Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“
„Ég þarf bara að skipuleggja mig betur“ Í samfélaginu í dag er hraðinn sjálfgefin stilling. Það kannast flestir við það að það sé „brjálað að gera“ og að við eigum helst að vera á tveimur stöðum í einu. Við erum flest með mörg mismunandi verkefni og skyldur sem við...
Ef ekki núna, hvenær?
Að taka ábyrgð á eigin heilsu og velferð með sjálfsumhyggju að leiðarljósi Nýlega sat ég með hópi kvenna á Sjálfsræktarhelgi og talaði um sjálfsumhyggju sem felur m.a. í sér að koma fram við sig eins og maður kemur fram við góðan vin. Að læra að staldra við og taka...
Hinn gullni meðalvegur
Margir vita nákvæmlega hvað þeir ættu að gera til að líða betur. Eftir að hafa starfað við heilsuráðgjöf í rúm 15 ár er ein fyrsta spurningin sem ég spyr fólk enn þessi: „Ef þú ættir að velja eitt sem þú veist að þú gætir gert til þess að bæta heilsuna þína, hvað væri...
Hreyfing – Þegar gæði skipta meira máli en magn
Sífellt fleiri átta sig á því að hreyfing sem byggir upp í senn liðleika, styrk og jafnvægi er ekki bara aukaatriði, heldur lykilforsenda þess að líða vel, hreyfast vel og viðhalda heilsu til lengri tíma. Þrátt fyrir það upplifa margir að líkaminn sé stífur og...
Ásetningur á áramótum
Áramótin marka ákveðin þáttaskil. Einu ári lýkur og annað hefst. Fyrir marga er þetta tími uppgjörs og nýrra áforma, tími þar sem við erum hvött til að horfa fram á við, setja okkur markmið og ákveða hverju við viljum breyta. Fyrir suma vekja áramótin þeim eldmóð í...


